Snyrtileg 4ra herbergja íbúð á efstu hæð við Álfaskeið í Hafnarfirði - Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi - Bílskúr - Mikið útsýni.
Íbúðin er skráð 110,8fm., þ.a. geymsla 5,2fm og sérstæður bílskúr í bílskúralengju 23,7fm að stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Samtals birt stærð eignar 134,5fm.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit STRAX:
Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu, efri og neðri skápar, keramik helluborð og borðkrók með miklu útsýni. Þrjú
svefnherbergi, tvö með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.
Stofa og borðstofa er rúmgóð með útgengi á suð/vestur svalir frá stofu.
Í sameign kjallara er
sér geymsla ásamt
hjóla- og vagnageymslu. Þvottahús/þurrkherbergi: sameiginlegt í kjallara. Sameiginlegur garður með leiktækjum.
Bílskúr er með ofnum og köldu vatni. Steypt gólf.
Allar nánari upplýsingar veitir Reynir Erlingsson löggiltur fasteignasali í síma 414-6600 / 820-2145 / [email protected]
Framkvæmdasaga:
Haustið 2022 voru kláraðar spunguviðgerðir og málun ásamt þakviðgerð. Skipt um oppnanleg fög austanmegin, svalarhurð endurnýjuð og gler endurnýjað í stofuglugga. Svalagólf flotað og málað. Stigagangur málaður og teppi endurnýjað. Fyrir um fimm árum voru skolplagnir úr húsi endurnýjaðar.
Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi - Stutt í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu - Stutt í helstu stofnæðar.