*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
Til sölu björt og vel skipulögð 4ra herb. endaíbúð með verönd í suður og svölum í norður ásamt stæði í bílgeymslu við Strandveg 18 (íb. 101) í Garðabæ. Vandað lyftuhús byggt árið 2004 af BYGG (Byggingafélag Gunnars og Gylfa). Íbúðin er 129,5fm. þar af geymsla 7,7fm. Þvottahús innan íbúðar. Smelltu hér til að fá söluyfirlit STRAX:Nánari lýsing: Forstofa með góðum skápum og fatahengi.
Stofa og borðstofa, er rúmgóð með stórum gluggum til norðurs þaðan sem er útgengi á svalir og útsýni til sjávar.
Svalir eru flísalagðar.
Eldhús er opið inní stofu/borðstofu með málaðri eikarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél.
Eldunareyja með eldhúsborði.
Hjónaherbergi er rúmgott og með góðu skápaplássi, þaðan sem er útgengt á suður verönd. Af
verönd er útgengi á sameiginlegan bakgarð með leiktækjum og gróðri.
Tvö barnaherbergi með skápum.
Baðherbergi er með baðkari og innangengri sturtu. Innrétting og skápar við vask, upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi er á baðherbergi. Frá baðherbergi er innangengt í
Þvottahús, með vinnuborði, skápum og hillum. Gólfefni eru parket og flísar..
Sérstæði í bílakjallara, búið að leggja fyrir rafhleðslustöðvum í bílakjallara, en ekki búið að tengja fyrir þessa íbúð. Í sameign er sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla þaðan sem er útgengt í bakgarð.
Séreignargeymsla er í kjallara. Stigagangur er snyrtilegur og myndavéladyrasími er í íbúð.
Um er að ræða góða staðsetningu í Sjálandshverfi í Garðabæ þar sem stutt er í útivist og barnvænan bakgarð með leiktækjum. Fallegir göngu- og hjólastígar um hverfið við sjóinn. Allar nánari upplýsingar veitir Vala Georgsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 695-0015 / [email protected] eða Reynir Erlingsson löggiltur fasteignasali í síma 820-2145 / [email protected]