Sumarbústaðalóð í Hvalfjarðarsveit við Hafnarskóg. Um er að ræða 400m² byggingarreit við Álfheima 2 í kjarrivöxnu landi með útsýni til sjávar og að Borgarnesi. Rafmagn og kalt vatn að lóðarmörkum. Leyfi til að byggja 80m² sumarhús. Leigulóð til 30 ára.
Stutt er í alla helstu þjónustu í Borgarnesi og Hamarsvöll (Golfvöllur).
Við hjá Nýju heimili getum einnig boðið vel hannaða og vistvæna sumarbústaði í öllum stærðum og gerðum. Sjá nánar: Sumarbústaðir
Mynd og skipulag sýnir bústað "KLIÐABERG" og er hann fáanlegur í stærðum 55m² upp í 78m².
Nánar um húsið KLIÐABERG:
Húsið er staðsett í fallegu umhverfi með útsýni til sjávar. Það er þrefalt gler í öllum gluggunum, húsið er vel skipulagt og ýmsar útfærslur mögulegar. Stuttur byggingartími frá því að grunnstoðir eru komnar þar til húsið er fullbyggt. Afhendist tilbúin án eldhúsinnréttingar og fataskápa. Baðherbergið verður fullklárað flísalagt, sturta, baðinnrétting og upphengt salerni. Hágæða blöndunartæki frá VALA.