Falleg og björt, þriggja herbergja íbúð við á jarðhæð með sérinngangi við Skólabraut 1 í 220 Hafnarfjörður ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameignar og lóðarréttindum. Búslóð getur fyglt ef vill. Yndisleg staðsetning í þessu rómantíska umvherfi. Gott útsýn til Hamarsins og hafs. Þessi eign er hjarta Hafnarfjarðar í fallegu og sjarmerandi húsi. Eignin er í útleigu til 1. febrúar 2025, ágætar leigutekjur.
Byggingarár hússins er árið 1923, sennilega elsti hlutinn þá og húsið svo stækkað síðar.
Nánari lýsing: Fín forstofa, gangur hol með geymslu. Annað hol með skrifstofu aðstööu. Mjög rúmgott svefnherbergi, með skápum. Baðherbergi með sturtu og lítilli innréttingu með vaski.
Stofa og eldhús í alrými. ´Ágætt eldhús, lítil borðuppþvottavél. Eldavél og vifta. Inn af eldhúsi er sameiginlegt þvottahús og útgangur út í garð og sameiginlega útigeymslu. Inn af stofu er ágætt svefnherbergi með skáp.
Gólf í íbúðinni eru að mestu lökkuð, en baðherbergi flísalagt.
Starfandi húsfálg er í húsinu.